Skilmálar
Uppfært 14. október 2026 · English below
Þessir skilmálar gilda um Aflinn, viðskiptavinagátt Verbúðar 53 ehf. á v53.is/aflinn, og um tengingu þess við Canva. Með því að skrá þig inn samþykkir þú þá. Um einstök verk gildir tilboð eða samningur hverju sinni.
Aðgangur
- Verbúð 53 stofnar aðganga fyrir tengiliði viðskiptavina. Þú berð ábyrgð á lykilorðinu þínu og því sem gert er í þínu nafni.
- Aðgangur er bundinn fyrirtækinu sem þú starfar fyrir. Þú mátt ekki veita utanaðkomandi aðgang nema með deilihlekk sem Aflinn býr til.
Efnið
- Höfundaréttur að efni sem Verbúð 53 framleiðir, hráefni jafnt sem fullunnum útgáfum, er hjá Verbúð 53 samkvæmt höfundalögum nr. 73/1972. Afhending skráa felur ekki í sér framsal höfundaréttar (sbr. 27. gr. laganna); hún felur í sér afnotaréttinn sem lýst er hér.
- Fyrirtækið þitt fær ótímabundinn og óframseljanlegan afnotarétt að afhentu efni, án einkaréttar, til eigin kynningar og markaðssetningar á öllum eigin miðlum: vef, samfélagsmiðlum, auglýsingum, kynningum og innanhúss. Afnotarétturinn er innifalinn í verði verksins og rennur ekki út þótt aðgangi að Aflanum ljúki.
- Ykkur er heimilt að aðlaga afhent efni að eigin miðlum, svo sem að breyta sniði, stytta, texta og þýða, án þess að það teljist óheimil breyting á verkinu. Efninu má ekki breyta þannig að það skaði orðspor Verbúðar 53 eða þeirra sem koma fram í því, og ekki má fjarlægja merkingu um réttindi þriðja aðila.
- Endursala, framsal eða leyfisveiting til þriðja aðila, svo sem samstarfsaðila, fjölmiðla eða til nota fyrir önnur fyrirtæki, er háð skriflegu samþykki Verbúðar 53. Afnotarétturinn fylgir fyrirtækinu ef það er selt í heild eða að hluta.
- Verbúð 53 má sýna verkið í eigin kynningu, svo sem á vef, í safni verka og á samfélagsmiðlum, eftir að það hefur verið birt af ykkur eða samþykkt til birtingar, nema um trúnað sé samið í tilboði.
- Efni sem þið leggið sjálf inn í Aflann, merkt „Ykkar efni“, heldur ykkar réttindum; Verbúð 53 fær aðeins heimild til að geyma það og vinna úr því fyrir ykkur. Réttindi þriðja aðila, tónlist, fólk í mynd, leturgerðir og leyfisefni, lúta eigin skilmálum sem eru merktir við skrána þegar þau eiga við, og þú berð ábyrgð á að virða þau.
- Annað gildir aðeins sé um það samið skriflega í tilboði eða samningi um verkið.
- Efni einstakra verkefna er aðgengilegt í Aflanum í 90 daga frá skilum. Hásetar halda aðgengi meðan áskrift varir. Verbúð 53 varðveitir frumefni og útgáfur utan nets samkvæmt eigin reglum.
- Samþykkt á klippi í Aflanum jafngildir samþykkt á útgáfunni. Breytingar eftir samþykkt eru metnar og staðfestar áður en vinna hefst og ekkert er gjaldfært fyrr en þá.
Aðild (háseti)
- Aðild er eitt ár í senn, á föstu mánaðargjaldi, og endurnýjast aðeins með samþykki ykkar.
- Árinu fylgir: einn tökudagur að ykkar vali, heill dagur á ykkar stað innan höfuðborgarsvæðisins (allt að átta klukkustundir): Samfélagsmiðlar (8–12 myndskeið með texta), Viðburður (upptakan í heild og 90 sekúndna hápunktamyndband) eða Ljósmyndir (40 myndir unnar), með einni umferð breytinga og afhent í þeim sniðum sem þið þurfið; eitt ljósmyndasett, hálfur dagur, myndirnar unnar; og flokkun á eldra efni ykkar inn í Aflann, allt að einn eftirvinnsludagur.
- Tökudagurinn er bókaður í samráði og nýttur innan aðildarársins. Það sem ekki er nýtt flyst ekki á næsta ár.
- Allt umfram það er unnið á hásetaverði, sem er 15% undir verðskrá, og verðlagt áður en vinna hefst. Ferðakostnaður og aðkeypt vinna er utan hásetaverðs.
- Meðan aðild varir er efnið ykkar hýst í Aflanum án 90 daga marks.
- Aðild fylgir geymsla fyrir allt að 1 TB af efni í Aflanum samtals, bæði efni frá Verbúð 53 og efni sem þið hlaðið upp sjálf. Þurfi meira pláss er því bætt við gegn föstu mánaðargjaldi á hvert terabæti, sem samið er um í aðildarsamningi.
- Efni sem þið hlaðið upp verður að vera ykkar eða þið að hafa rétt til að nota það, þar á meðal tónlist og fólk sem sést. Verbúð 53 má fjarlægja efni sem brýtur gegn rétti annarra eða lögum.
Canva-tengingin
- Tengingin er valfrjáls. Hún sendir aðeins þær skrár sem þú velur í Aflanum í Uploads hjá þér í Canva. Hún les ekkert úr Canva-reikningnum þínum.
- Skrár sem komnar eru í Canva lúta skilmálum Canva og geymslu þíns Canva-reiknings. Verbúð 53 greiðir ekki fyrir, og ber ekki ábyrgð á, geymslu eða vinnslu í Canva.
- Þú getur aftengt hvenær sem er í Aflanum eða í Canva. Við það eyðum við Canva-lyklunum þínum.
Notkun
Óheimilt er að nota Aflinn til að dreifa efni sem þú hefur ekki rétt á, til að reyna að komast í efni annarra fyrirtækja, eða á þann hátt sem truflar þjónustuna.
Þjónusta og ábyrgð
Aflinn er veittur eins og hann er. Verbúð 53 leitast við að halda því aðgengilegu en ábyrgist ekki samfellda uppitíma. Verbúð 53 ber ekki ábyrgð á óbeinu tjóni, þar með talið vegna þjónustu þriðja aðila á borð við Canva, Bunny.net, Backblaze, Neon eða Netlify.
Breytingar og lög
Verbúð 53 getur breytt skilmálunum og tilkynnir það í Aflanum. Íslensk lög gilda og ágreiningur fer fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur. Spurningar: info@verbud53.is. Sjá einnig persónuverndarstefnu.
Terms of use (English)
These terms govern Aflinn, the Verbúð 53 ehf. client portal at v53.is/aflinn, and its connection to Canva. By signing in you accept them. Individual productions are governed by the quote or agreement for that work.
Access
- Verbúð 53 creates accounts for client contacts. You are responsible for your password and for what is done under your login.
- Access is tied to the company you work for. Outsiders may only be given access through share links the portal creates.
Content
- Copyright in material Verbúð 53 produces, raw footage and finished versions alike, stays with Verbúð 53 under the Icelandic Copyright Act No. 73/1972. Handing over files does not transfer copyright (see Article 27 of the Act); it grants the licence described here.
- Your company receives a perpetual, non-transferable, non-exclusive licence to use the delivered material for its own promotion and marketing on all of its own channels: website, social media, advertising, presentations and internal use. The licence is included in the price of the work and does not end when access to the portal ends.
- You may adapt the delivered material to your channels, such as reformatting, shortening, adding text and translating, without this counting as an unauthorised alteration of the work. It must not be altered in a way that damages the reputation of Verbúð 53 or of the people appearing in it, and third-party rights notices must not be removed.
- Resale, assignment or licensing to third parties, such as partners, media or use for other companies, requires Verbúð 53's written consent. The licence follows your company if it is sold in whole or in part.
- Verbúð 53 may show the work in its own promotion, such as its website, portfolio and social media, once you have published it or approved it for publication, unless confidentiality is agreed in the quote.
- Material you upload to the portal yourself, marked "Your material", keeps your rights; Verbúð 53 only gets permission to store it and work with it for you. Third-party rights, music, people on camera, fonts and licensed material, are governed by their own terms, which are noted on the file where they apply, and you are responsible for respecting them.
- Anything else applies only if agreed in writing in the quote or contract for the work.
- Project content stays available in the portal for 90 days after delivery; members keep access while their membership lasts. Verbúð 53 keeps originals and masters offline under its own rules.
- Approving a cut in the portal is approval of that version. Changes after approval are sized and confirmed before work starts, and nothing is charged until then.
Membership (háseti)
- Membership runs one year at a time on a fixed monthly fee and renews only with your consent.
- The year includes: one shoot day with a crew of three at your place inside the capital area, up to four hours on site; ready material from that day, one piece or a small set agreed before the edit starts, made in up to two post-production days with one round of changes and delivered in the formats you need; one photo set, half day, retouched; and sorting of your older material into Aflinn, up to one post-production day.
- The shoot day is booked together and used within the membership year. Unused parts do not carry over.
- Everything beyond is done at the deckhand rate, 15% below list, and priced before work starts. Travel and subcontracted work are outside the deckhand rate.
- While the membership lasts, your material stays in Aflinn without the 90-day limit.
- Membership includes storage for up to 1 TB of material in Aflinn in total, both material from Verbúð 53 and material you upload yourselves. More space is added at a fixed monthly fee per terabyte, agreed in the membership contract.
- Material you upload must be yours or you must hold the right to use it, including music and people shown. Verbúð 53 may remove material that infringes the rights of others or the law.
The Canva connection
- The connection is optional. It only sends files you select in the portal into your own Canva Uploads. It reads nothing from your Canva account.
- Files sent to Canva are subject to Canva's terms and your Canva account storage. Verbúð 53 does not pay for, and is not responsible for, storage or processing inside Canva.
- You can disconnect at any time in the portal or in Canva. We then delete your Canva tokens.
Use
You may not use the portal to distribute content you have no rights to, to attempt to reach other companies' content, or in a way that disrupts the service.
Service and liability
The portal is provided as is. Verbúð 53 aims to keep it available but does not guarantee uninterrupted uptime, and is not liable for indirect loss, including loss arising from third-party services such as Canva, Bunny.net, Backblaze, Neon or Netlify.
Changes and law
Verbúð 53 may change these terms and will announce changes in the portal. Icelandic law applies and disputes go before the District Court of Reykjavík. Questions: info@verbud53.is. See also the privacy notice.