Persónuvernd

Uppfært 14. október 2026 · English below

Verbúð 53 ehf. (info@verbud53.is) ber ábyrgð á vinnslu persónuupplýsinga á v53.is og í Aflanum, viðskiptavinagátt Verbúðar 53. Þessi síða lýsir hvaða upplýsingar við geymum, hvers vegna, hvar og hve lengi.

Hvað við geymum

  • Aðgangur: nafn, netfang, hlutverk, dulkóðað lykilorð (scrypt) og innskráningarlotur.
  • Efni: myndbönd, ljósmyndir, hljóð og skjöl sem Verbúð 53 framleiðir fyrir fyrirtækið þitt eða þú hleður upp, ásamt titlum, merkingum og sjálfvirkum lýsingum.
  • Samskipti: athugasemdir við klipp, samþykktir, beiðnir, fundarbeiðnir og skilaboð.
  • Deilihlekkir: hvaða skil hafa verið deilt, hvenær hlekkurinn rennur út og fjöldi áhorfa.
  • Canva-tenging (valfrjálst): ef þú tengir Canva-reikninginn þinn geymum við aðgangs- og endurnýjunarlykil frá Canva, tengdan þínum notanda, til þess eins að senda valdar skrár úr Aflanum í Uploads hjá þér í Canva. Við lesum ekki hönnun, möppur eða aðrar upplýsingar úr Canva-reikningnum þínum.

Hvar upplýsingarnar eru geymdar

  • Gagnagrunnur: Neon (PostgreSQL), Frankfurt, Þýskalandi. Dulkóðað í geymslu (AES-256) og í flutningi (TLS).
  • Myndbandsspilun: Bunny.net Stream, Frankfurt, Þýskalandi. Spilun krefst undirritaðs hlekkjar sem rennur út.
  • Skrár og frumefni: Backblaze B2, EU Central. Niðurhal krefst undirritaðs hlekkjar sem rennur út.
  • Vefur og þjónustuföll: Netlify.
  • Sjálfvirkar lýsingar á efni eru búnar til með gervigreindarlíkani (Anthropic) út frá stillum úr skránum; engar persónuupplýsingar um notendur eru sendar með.
  • Canva: aðeins skrárnar sem þú velur sjálf/ur að senda, og aðeins þegar þú tengir reikninginn.

Við seljum ekki upplýsingar og deilum þeim ekki með öðrum en þeim vinnsluaðilum sem taldir eru upp hér.

Hve lengi

  • Aðgangur og samskipti: meðan viðskiptasamband varir, og eytt innan 30 daga frá beiðni eða lokum sambands.
  • Efni einstakra verkefna: aðgengilegt í Aflanum í 90 daga frá skilum; áminning á degi 60. Hásetar (áskrifendur) halda aðgengi meðan áskrift varir.
  • Deilihlekkir: renna út eftir 30 daga og má afturkalla hvenær sem er.
  • Canva-lyklar: eytt um leið og þú aftengir Canva í Aflanum, þegar þú afturkallar aðgang í Canva, eða þegar endurnýjun bregst. Þeir eru líka eytt með notandanum.

Hvernig þú eyðir upplýsingum

  • Canva: smelltu á „Aftengja Canva“ undir Gervigreind í Aflanum (hakaðu við skrá, þá birtist hnappurinn), eða fjarlægðu „Verbúð 53“ undir Connected apps í Canva. Skrár sem þegar eru komnar í Canva eru á þínum reikningi þar og við höfum enga stjórn á þeim.
  • Notandi og efni: sendu beiðni á info@verbud53.is. Við staðfestum eyðingu innan 30 daga.

Réttindi þín

Þú átt rétt á aðgangi, leiðréttingu, eyðingu, takmörkun vinnslu og flutningi gagna samkvæmt lögum nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga og GDPR. Kvörtunum má beina til Persónuverndar, personuvernd.is.


Privacy notice (English)

Verbúð 53 ehf. (info@verbud53.is), Reykjavík, Iceland, is the data controller for v53.is and Aflinn, the Verbúð 53 client portal.

What we store

  • Account: name, email, role, a scrypt-hashed password and sign-in sessions.
  • Content: video, photos, audio and documents Verbúð 53 produces for your company or you upload, with titles, tags and automatically generated descriptions.
  • Communication: comments on cuts, approvals, requests, meeting requests and messages.
  • Share links: which deliveries were shared, expiry and view counts.
  • Canva connection (optional): if you connect your Canva account we store the Canva access and refresh token, tied to your user, solely to send files you select from your library into your Canva Uploads. We never read designs, folders or anything else from your Canva account.

Where

  • Database: Neon (PostgreSQL), Frankfurt, Germany, encrypted at rest (AES-256) and in transit (TLS).
  • Video playback: Bunny.net Stream, Frankfurt, Germany, behind signed, expiring URLs.
  • Files and originals: Backblaze B2, EU Central, behind signed, expiring URLs.
  • Web and serverless functions: Netlify.
  • Automatic file descriptions are generated by an AI model (Anthropic) from stills of the files; no user data is sent with them.
  • Canva: only the files you choose to send, and only once you connect your account.

We do not sell data and share it with no one beyond the processors listed above.

How long

  • Account and communication: for the duration of the client relationship, deleted within 30 days of a request or the end of the relationship.
  • Project content: available in the portal for 90 days after delivery (reminder on day 60); members keep access while the membership lasts.
  • Share links: expire after 30 days and can be revoked at any time.
  • Canva tokens: deleted as soon as you disconnect Canva in the portal, revoke access in Canva, or a refresh fails. They are also deleted with the user.

Deleting your data

  • Canva: click “Disconnect Canva” under AI in the portal, or remove “Verbúð 53” under Connected apps in Canva. Files already sent live in your own Canva account and are outside our control.
  • Account and content: email info@verbud53.is. We confirm deletion within 30 days.

Your rights

You have the rights of access, rectification, erasure, restriction and portability under Icelandic Act no. 90/2018 and the GDPR. Complaints may be lodged with the Icelandic Data Protection Authority, personuvernd.is.